Matarupplifun & skapandi kokteilar

Bóka borðSjá kvöldmatseðil
Velkomin á Kol

Þar sem bragðheimar mætast

Staðsettur í hjarta Reykjavíkur. Á Kol standa reynslumiklir menn í veitingarbransanum. Eldhúsinu á Kol stjórnar Sævar Lárusson. Hann hefur unnið á mörgum vinsælustu og flottustu veitingastöðum landsins. Barnum og salnum á Kol stjórnar Arnór Haukur Diego en hann hefur verið viðloðandi KOL frá upphafi og þekkir hjarta og sál KOL eins og handabakið á sjálfum sér.

Kol býður upp á einstaka matarupplifun með áherslu á íslensk hráefni og innblástur úr öllum heimshornum — við einbeitum okkur að því að matreiða hágæða hráefni á sem girnilegastan máta.

2014
Stofnað
Skólavörðustígur 28
Í hjarta Reykjavíkur
Kolagrillað
Yfir lifandi eldi
Vinsælast

Vinsælustu réttirnir okkar

Sjá allan kvöldmatseðilinn

Fullkomnar steikur fyrir hvert tilefni

Samsettir seðlarGjafabréf
Steikhús

Hver steik er vandlega elduð með ástríðu fyrir gæðum, áferð og bragði.

Grillað nákvæmlega eftir þínum óskum.

Við notum hráefni af hæsta gæðaflokki og eldum til að ná fullkomnu jafnvægi milli þess að vera meyr og bragðmikið inn að kjarna og stökk að utan — fyrir steikarupplifun sem þú manst.

Hvort sem tilefnið er hátíðlegt, rómantískur kvöldverður fyrir tvo eða einfaldlega löngun í fullkomna steik, þá býður Kol upp á ógleymanlega matarupplifun. Komdu og upplifðu hámark steikhússgæða.

Hver steik er vandlega elduð með ástríðu fyrir gæðum, áferð og bragði.
Upplifunin

Upplifunin hefst hér

Andrúmsloftið er lykilatriði af upplifun þinni hjá okkur. Blanda af fínu og stílhreinu umhverfi — afslappað andrúmsloft sem gerir Kol að tilvöldnum stað fyrir hversdagslegan kvöldverð, sérstök tilefni með vinum eða einfaldlega kokteil á barnum.

Andrúmsloftið hjá okkur er hannað til að umvefja þig hlýju og fáguðum stíl — fullkominn rammi utan um eftirminnilega máltíð. Slakaðu á í notalegu og hlýlegu umhverfi þar sem þjónustulund starfsfólksins tryggir að þú fáir einstaka upplifun.

Sköpunarheimur bragðlaukana
Barinn

Sköpunarheimur bragðlaukana

Hágæða kokteilar, frá grunni.

Á barnum á Kol er mikið lagt upp úr hágæða kokteilum. Við forðumst hráefni með gervi bragð- og litarefnum — lögum okkar eigin síróp og infuserum okkar eigin útgáfur af áfengi, og bjóðum einungis upp á vörur sem standa undir nafni.

Barinn á Kol er í fararbroddi rísandi kokteilsenu Íslands ásamt nokkrum öðrum stöðum í Reykjavík.

Sjá kokteilseðilinn

Staðsetning

Skólavörðustígur 28, 101 Reykjavík

Mán — fim
11:30 — 22:00
Föstudagur
11:30 — 23:00
Laugardagur
11:30 — 23:00
Sunnudagur
11:30 — 22:00
Kol Restaurant að innan við Skólavörðustíg 28 í Reykjavík